Select Page

Landslið blandaðs liðs fullorðinna í hópfimleikum

Your Title Goes Here

Day(s)

:

Hour(s)

:

Minute(s)

:

Second(s)

Landslið fyrir Evrópumót 2021

Landsliðsþjálfarar boða til opinna æfinga fyrir úrvalshópa í hópfimleikum, gerðar eru kröfur um geturstig þeirra sem hyggjast mæta á æfinguna. Úrvalshópur er valin út frá frammistöðu á opnum æfingum. Landslið Íslands er svo valið úr iðkendum sem eiga sæti í úrvalshópi.

Æfingar fyrir landsliðshópa 

Landsliðshópar æfa saman í fjórum lotum á tímabilinu júlí 2020 til febrúar 2021, þegar landsliðin verða tilkynnt. Landsliðshópar verða endurskoðaðir í gegnum ferlið, eða þar til landslið verða tilkynnt. Upplýsingar um æfingar fara fram í gegnum Facebook síður hvers hóps.

Yfirþjálfarar 

Yfirþjálfarar verkefnisins eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum. 

Áfram Ísland
#fyririsland
#fimleikarfyriralla
#islenskirfimleikar

 

 

Landsliðshópur blandaðs liðs fullorðinna

 

Alexander Sigurðsson

Íþróttafélagið Gerpla

Ásmundur Óskar Ásmundsson

Íþróttafélagið Gerpla

Einar Ingi Eyþórsson

Stjarnan

Eysteinn Máni Oddsson

Íþróttafélagið Gerpla

Guðmundur Kári Þorgrímsson

Íþróttafélagið Gerpla

Helgi Laxdal

Stjarnan

Stefán Ísak Stefánsson

Stjarnan

Viktor Elí Tryggvason

Íþróttafélagið Gerpla

Örn Frosti Katrínarson

Stjarnan

 

Agnes Suto-Tuuha

Íþróttafélagið Gerpla

Andrea Hansen

Íþróttafélagið Gerpla

Anna María Steingrímsdóttir

Stjarnan

Inga Sigurðardóttir

Íþróttafélagið Gerpla

Karitas Inga Jónsdóttir

Íþróttafélagið Gerpla

Kristín Sara Stefánsdóttir

Fjölnir

Margrét María Ívarsdóttir

Íþróttafélagið Gerpla

Rebekka Rut Stefánsdóttir

Íþróttafélagið Gerpla

Sveinbjörg B. Kristjánsdóttir

Íþróttafélagið Gerpla

Landsliðsþjálfarar

Ásta Þyri

Katrín Pétursdóttir

Gólfæfingar

Kristinn Þór Guðlaugsson

Kristinn Þór Guðlaugsson

Dýnustökk og trampólín

Rakel Másdóttir

Rakel Másdóttir

Dýnustökk og trampólín

Fyrirkomulag bandaðra liða á Evrópumótum

Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum. Í hópnum þarf að vera jafnt hlutfall kvenna og karla. Meiðist keppandi, þarf keppandi af sama kyni að fylla í skarð þess keppanda. Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppast um titilinn

Úrslit Íslands á Evrópumótum í blönduðu liði fullorðinna

Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Mótið var félagsliðamót til ársins 2010 og mátti hvert land þá senda tvö lið til keppni. 

2008 – Ghent, Belgía – 9. sæti (Stjarnan) og 4. sæti (Ármann)

2012 – Århus, Danmörk – 4.-5. sæti

2014 – Reykjavík, Ísland – 3. sæti

2016 – Maribor, Slóvenía – 3. sæti

2018 – Lisbon, Portúgal – 3. sæti

2021 – Copenhagen, Danmörk –

Um Evrópumótið

Staðsetning

Ballerup Super Arena, í Kaupmannahöfn í Danmörku 

Dagsetning

14. – 17. apríl 2021

Aldur

Unglingaflokkur 13-18 ára (fædd 2003-2008)
Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri 

    Frekari upplýsingar

    Heimasíðu mótsins má finna hér. Nánast er orðið uppselt á mótið og því einungis örfáir miðar eftir, en beinan link inn á miðasöluna má finna hér.