Landslið blandaðs liðs unglinga í hópfimleikum
Your Title Goes Here
Day(s)
:
Hour(s)
:
Minute(s)
:
Second(s)
Landslið fyrir Evrópumót 2021
Landsliðsþjálfarar boða til opinna æfinga fyrir úrvalshópa í hópfimleikum, gerðar eru kröfur um geturstig þeirra sem hyggjast mæta á æfinguna. Úrvalshópur er valin út frá frammistöðu á opnum æfingum. Landslið Íslands er svo valið úr iðkendum sem eiga sæti í úrvalshópi.
Æfingar fyrir landsliðshópa
Landsliðshópar æfa saman í fjórum lotum á tímabilinu júlí 2020 til febrúar 2021, þegar landsliðin verða tilkynnt. Landsliðshópar verða endurskoðaðir í gegnum ferlið, eða þar til landslið verða tilkynnt. Upplýsingar um æfingar fara fram í gegnum Facebook síður hvers hóps.
Yfirþjálfarar
Yfirþjálfarar verkefnisins eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum.
Áfram Ísland
#fyririsland
#fimleikarfyriralla
#islenskirfimleikar
Landsliðshópur blandaðs liðs unglinga
Ævar Kári Eyþórsson | Selfoss |
Arnór Gauti Árnason | Stjarnan |
Bjarni Már Stefánsson | Selfoss |
Daníel Már Stefánsson | Selfoss |
Eyþór Örn Þorsteinsson | Stjarnan |
Hilmar Andri Lárusson | Íþróttafélagið Gerpla |
Júlían Máni K. Rakelarson | Stjarnan |
Markús Pálsson | Stjarnan |
Sigurður Ari Snæbjörnsson | Stjarnan |
Sindri Snær Bjarnason | Selfoss |
Ása Kristín Jónsdóttir | Selfoss |
Birta Sif Sævarsdóttir | Selfoss |
Emma Jónsdóttir | Keflavík |
Guðrún Hrönn Sigurðardóttir | Fjölnir |
Inga Jóna Þorbjörnsdóttir | Selfoss |
Karitas Líf Sigurbjörnsdóttir | Selfoss |
Linda Björk Arnarsdóttir | Íþróttafélagið Gerpla |
Sigríður Embla Jóhannsdóttir | Íþróttafélagið Gerpla |
Telma Rut Sæþórsdóttir | Íþróttafélagið Gerpla |
Unnur Eva Hlynsdóttir | Íþróttafélagið Gerpla |
Landsliðsþjálfarar
Björk Guðmundsdóttir
Gólfæfingar
Mads Pind
Dýnustökk og trampólín
Þórdís Þöll Þráinsdóttir
Dýnustökk og trampólín
Fyrirkomulag bandaðra liða á Evrópumótum
Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum. Í hópnum þarf að vera jafnt hlutfall kvenna og karla. Meiðist keppandi, þarf keppandi af sama kyni að fylla í skarð þess keppanda. Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppast um titilinn.
Úrslit Íslands á Evrópumótum í blönduðu liði unglinga
Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Keppni í unglingaflokki hófst fyrst á Evrópumótum árið 2010.
2012 – Århus, Danmörk – 4. sæti
2014 – Reykjavík, Ísland – 3. sæti
2016 – Maribor, Slóvenía – 3. sæti
2018 – Lisbon, Portúgal – 4. sæti
2021 – Copenhagen, Danmörk –

Um Evrópumótið
Staðsetning
Ballerup Super Arena, í Kaupmannahöfn í Danmörku
Dagsetning
14. – 17. apríl 2021
Aldur
Unglingaflokkur 13-18 ára (fædd 2003-2008)
Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri
Frekari upplýsingar
Heimasíðu mótsins má finna hér. Nánast er orðið uppselt á mótið og því einungis örfáir miðar eftir, en beinan link inn á miðasöluna má finna hér.