Mótahald FSÍ
– Inngangur
Í samantekt þessari er fjallað um hlutverk þeirra aðila sem koma að mótahaldi Fimleikasambands Íslands (FSÍ) og áhersla lögð á undirbúning og framkvæmd fimleikamóta. Það sama á við um önnur mót, alþjóðleg sem innan félaga.
Þeir sem koma að mótahaldi FSÍ eru í megin atriðum fimm aðilar þ.e. stjórn FSÍ, mótastjóri FSÍ, tækninefndir FSÍ, yfirdómari/-ar mótsins og mótshaldari hverju sinni sem eru aðildarfélög FSÍ.
Stjórn FSÍ
Stjórn FSÍ ber samkvæmt lögum FSÍ, að setja upp mótaskrá hvers keppnistímabils og úthluta mótum til aðildarfélaga. Keppnistímabil fimleika telst frá 1. september til 31. ágúst næsta árs. Tímasetning móta er háð Móta- og keppnisreglum FSÍ. Við undirbúning á mótaskrá FSÍ setur mótastjóri FSÍ upp tillögu að mótaskrá sem að tækninefndir koma með athugasemdir við. Þegar mótaskrá er tilbúin er hún að lokum send til stjórnar til samþykkis og loks birt á heimasíðu Fimleikasambandsins og send út á aðildarfélög.
Mótastjóri FSÍ sér um tengsl við fjölmiðla.
Mótastjóri skal tilkynna mótshaldar hverju sinni hvaða fyrirtæki hafa gert samstarfssamninga varðandi auglýsingar sem eiga að vera til staðar á mótum FSÍ sem og ef að ákveðin fyrirtæki eiga nafn mótsins t.d. GK Meistaramót FSÍ.
Stjórnin ber ábyrgð á að ofantöldum atriðum sé framfylgt
Mótastjóri FSÍ
Mótastjóri FSÍ er tengiliður þeirra aðila sem koma að mótahaldi á vegum FSÍ og hefur einnig ákveðið starfssvið í því vinnuferli sem fer í gang fyrir hvert mót.
Mótastjóri sér svo um að vinna úr skráningum, setja upp tillögu að skipulagi sem sent er á tækninefndir til yfirferðar. Eftir að skipulag móts er tilbúið er það sent út á skrifstofur félaga og auglýst á heimasíðu FSÍ. Mótastjóri býr til þátttakendalista keppenda, hann setur keppendalista inn í tölvukerfi sem notað er til að skrá einkunnir. En kerfið er á vefnum og geta áhorfendur nálgast allar einkunnir í rauntíma á meðan mótum stendur.
Frá mótastjóra FSÍ kemur einnig innskráning fyrir mótshaldara í mótakerfi, sem mikilvægt er að mótshaldasri kynni sér vel fyrir mót. Fyrir hvert FSÍ mót tekur mótastjóri til helstu mótagögn fyrir mótshaldara í “Móta tösku FSÍ” og auglýsingarborða sem mótshaldarar sækja á skrifstofuna. Í boði er fyrir félög að fá lánaðar tölvur og skjái til afnota í mótahaldinu.
Fyrir stærri mót sendir skrifstofa út fréttatilkynningu til fjölmiðla. Eftir öll mót skrifar mótshaldari stutta frétt um mótið sem send er til skrifstofu.
Tækninefndir FSÍ
Tækninefndir sem koma að mótahaldi FSÍ eru þrjár. Tækninefndir í áhaldafimleikum karla og kvenna og í hópfimleikum. Auk nefndar um Fimleika fyrir alla sem kemur að sýningarkeppnum. Nefndirnar aðstoða mótastjóra við tæknivinnu á mótum FSÍ og eru faglegir ráðgjafar mótastjóra og mótshaldara varðandi framkvæmd fimleikamóta.
Í lok hvers keppnistímabils leggja nefndirnar drög að tímasetningu móta næsta keppnistímabils og eiga jafnframt því að leggja fram ákvarðanir um keppnisform, kröfur og innihald móta til stjórnar eigi síðar en 1. júní. Þessi gögn eru svo send út, fullunnin, til aðildarfélganna í byrjun september.
Um tveimur til þremur vikum fyrir áætlað mót hefja tækninefndir störf fyrir þá keppni.
Tæknivinnan felur í sér:
- gerð heildaráætlun mótsins þ.e. allar tímasetningar (unnið í samvinnu við mótastjóra FSÍ)
- gerð upphitunaráætlunar (unnið í samvinnu við mótastjóra FSÍ)
- gerð keppnisáætlunar (unnið í samvinnu við mótastjóra FSÍ)
- að draga röðun einstaklinga eða hópa á keppnisáhöld þar sem við á (samvinna við mótastjóra FSÍ)
- að tilnefna yfirdómara mótsins
- að tilnefna yfirdómara á hverju áhaldi
- að raða dómurum á áhöld
- að tryggja að þau áhöld sem notuð verða á mótinu séu lögleg og keppnishæf
- yfirfara mótaskipulag frá mótastjóra
Drög að mótaskipulagi er tilbúið 14 dögum fyrir mótshelgi. Um leið og drög að skipulagi eru tilbúin er haft samband við mótshaldara og þeim tilkynnt um fjölda keppnishluta og ca tímalengd mótsins. Sé útlit fyrir að mótahaldið taki ekki heila helgi þá er skipulag unnið þannig að það henti mótshaldara sem best.
Yfirdómari mótsins
Yfirdómari/-arar mótsins eru tilnefndir af tækninefnd. Hann ber m.a. ábyrgð á því að allri tæknivinnu nefndarinnar og mótastjóra sé framfylgt á mótinu. Ýmist er yfirdómari í dómarasæti eða standandi. Á keppnisstað fyrir mótið fer hann yfir áhöld og kannar hvort að þau séu lögleg og keppnishæf.
Um einni klukkustund áður en keppni hefst heldur yfirdómari dómarafund, kynnir tilnefnda yfirdómara og dómara á hverju áhaldi, áminnir dómara um rétt vinnubrögð, dreifir dómaragögnum þar sem það á við og fer yfir innskráningu í tölvukerfið, s.s. dómaramiðum og dómarablöðum.
Yfirdómari mótsins fylgist með dómgæslu og aðstoðar yfirdómara áhalda ef upp koma vafaatriði eða ágreingar í dómaragengjum. Athugasemdir um tæknivinnu og dómgæslu sem berast mótsstjóra á meðan á keppni stendur skulu bera undir yfirdómara mótsins. Yfirdómari sér um að koma lokaskipulagi dómgæslu á mótastjóra FSÍ.
Mótshaldari
Mótshaldari er það aðildarfélag sem stjórn FSÍ hefur úthlutað í upphafi keppnistímabilsins til að hafa umsjón með framkvæmd mótsins. Framkvæmd og undirbúningur fimleikamóta er háð gerð og umfangi þess móts sem á að halda. Með gerð móts er átt við mót í áhaldafimleikum, hópfimleikum, stökkfimi eða sýningarfimleikum og hvort um er að ræða einstaklings-, hópakeppni eða hvort tveggja á sama mótinu. Sum mót eru mjög fjölmenn og önnur fámenn en grunnatriði í undirbúningi, skipulagi og mótsstjórn eru þau sömu. Það sama á við mót sem eru haldin innan félaga og boðsmót á milli félaga.
Við undirbúning móts þarf mótshaldari að huga að húsnæði, kostnaði og tekjum, áhaldauppsetningu og öðrum búnaði, starfsmannahaldi öðru en dómurum, verðlaunum (sem koma með mótagögnum frá skrifstofu FSÍ) og verðlaunaafhendingu, gögnum fyrir þjálfara, veitingum fyrir starfsmenn, áhorfendur, keyrslu mótsins og vinnu í mótslok. Hér að neðan verður farið yfir þessi skipulagsatriði í sömu röð en hafa skal í huga að slíkur listi er aldrei tæmandi.
Húsnæði
Mótshaldari þarf að huga að vali á húsnæði allt að hálfu ári fyrir áætlaða keppni. Mikilvægt er að tilkynna FSÍ valið eins fljótt og hægt er til að staðsetningar sé getið í verkefnaskrá ársins hjá FSÍ. Við val á húsnæði þarf að huga að gerð og umfangi mótsins bæði varðandi fjölda áhorfenda og keppenda og ef um áhaldafimleikamót er að ræða þarf sérstaklega að huga að festingum í gólfi. Þegar að húsnæði er pantað þarf að huga að dagsetningu og tímalegnd mótsins og gera ráð fyrir nægum tíma fyrir áhaldauppsetningu fyrir mótið og frágangi eftir mótið.
Kostnaður og tekjur
Kostnaður við framkvæmd fimleikamóta fer eftir umfangi mótsins en á móti kemur að auðveldara er að afla tekna á stærri/fjölmennari mótum.
Helsti kostnaður er:
- húsaleiga
- akstur áhalda og annars búnaðar
- prentun, ljósritun
- veitingar
Helstu tekjur eru:
- mótagjöld á móti FSÍ
- aðgangseyrir
- veitingasala og aðrir munir
- auglýsingar
- auglýsingaspjöld (önnur en styrktaraðilar FSÍ)
Áhaldauppsetning og annar búnaður
Gerð og magn áhalda er háð tegund og umfangi mótsins. Tækninefndir gefa upplýsingar um þau áhöld sem á að nota og þurfa þau að vera lögleg og keppnishæf. Nauðsynlegt er að gera áhaldalista og lista yfir væntanlega áhaldamenn. Við uppsetningu áhalda er nauðsynlegt að hafa góðan mannafla sem oftast eru stjórnarfólk, foreldrar og þjálfarar. Einnig gott að hafa 2-3 áhaldamenn á mótinu sjálfu ef færa þarf áhöld á meðan á keppni stendur.
Annar búnaður en fimleikaáhöld:
- stólar og borð fyrir dómara, ritara, mótsstjóra, kynni, tölvuritara, tónlist og veitingar
- tölvur og prentarar (staðsett í salnum)
- ljósritunarvél
- ýmis skrifstofubúnaður s.s. pappír, A4 umslög, pennar, klemmur, vasareiknar, skeiðklukka ofl.
- hljómtæki og hljóðkerfi, tónlist fyrir inn- og útmars
- mótataska FSÍ með keppnisgögnum, vasareiknum, áhaldafánum, skeiðklukkum, bjöllum
- vel útbúin sjúkrataska
- nælur fyrir keppnisnúmer
- fáni/-ar
- dúkar á borð
- verðlaunapallur
- verðlaunabakki/-ar
Starfsmannahald
Mótshaldari velur og ber ábyrgð á starfsmönnum mótsins öðrum en dómurum. Mikilvægt er að huga að starfsfólki með góðum fyrirvara, gera námkvæman starfsmannalista, tilkynna þeim mætingu og setja fólk vel inn í sín störf fyrir mótið. Getur gefið mótinu skemmtilegt yfirbragð að hafa samræmdan klæðnað t.d. háð hlutverkum t.d. ritarar í svörtu/bláu og hvítu líkt og dómarar, aðrir starfsmenn í snyrtilegum svörtum klæðnaði. Ítreka ber snyrtimennsku.
Helstu starfsmenn á vegum mótshaldara eru:
Mótsstjóri: ber ábyrgð á undirbúning og framkvæmd mótsins fyrir hönd mótshaldara. Við undirbúning vinnur hann í tengslum við mótastjóra FSÍ og tækninefndir og á mótinu sjálfu er hann í tenglsum við skipaða yfirdómara. Mótsstjóri sér um að keyra mótið áfram skv. tímaáætlun og fylgist með gangi mála hjá starfsmönnum. Hann tekur einnig á móti fjölmiðlafólki og vísar þeim á fulltrúa t.d. FSÍ s.s. tækninefndarfólk eða reynda dómara og þjálfara á mótsstað og upplýsir hvernig best sé að nálgast úrslit mótsins.
Kynnir: þarf að vera vel upplýstur varðandi mótið, upphitun, keppnina og keppendur. Hann vinnur skv. tímaáætlun mótsins þ.e. gefur upplýsingar um almenna upphitun, áhaldaupphitun, þjálfarafund, dómarafund. Kynnir félög eftir innmars og keppendur eftir fremsta megni á meðan á mótinu stendur, tilkynnir einnig áhaldaskipti á mótinu þegar það á við. Hann þarf að gæta þess að tala ekki ofan í tónlist sem og að trufla ekki keppendur. “Tala ekki of lítið og ekki of mikið”. Við upplestur úrslita í mótslok er mikilvægt að kynnir viti hvernig verðlaunaafhendingin á að fara fram og fái úrslit skilmerkilega framsett til að varast villur.
Tónlist: tónlistarstjóri hefur umsjón með marseringu, keppnistónlist, tónlist í upphitun. Mikilvægt að styrkur tónlistar sé hæfilegur svo að keppendur og dómarar heyri og að áhorfendur þoli við.
Fánaberi: gengur inn með fána við setningu og slit mótsins. Hann þarf að kunna fánakveðju og fá upplýsingar hjá mótsstjora hvernig að innmarsi og útmarsi sé háttað. Hann skal bera virðingu fyrir fánanum og vera snyrtilegur til fara við störf sín.
Áhaldaritarar: sjá um að slá inn einkunnir áhaldadómara á hverju áhaldi í einkunnakerfi FSÍ. Einn ritari er á hverju áhaldi á meðan á keppni stendur. Yfirdómari áhaldsins fræðir áhaldaritara um hvernig innslættinum skuli háttað. Eftir að keppni lýkur og áður en dómarar yfirgefa sín gengi eiga þeir að fara yfir og staðfesta sínar einkunnir við ritara. Mótsjóri ráðfærir sig við þá tækninefnd sem við á varðandi fjölda ritara á mótinu.
Tímaverðir: sjá um að mæla tímalengd keppnisæfinga og tíma keppenda í upphitun samkvæmt dómarareglum. Yfirdómarar á áhöldum eiga að koma tímavörðum inn í störf sín og ákjósanlegast er að að tímaverðir hafi dómararéttindi eða þekkingu í fimleikum. Mótstjóri ráðfærir sig við viðkomandi tækninefnd varðandi fjölda tímavarða á mótinu.
Línuverðir: eiga að vera til staðar er keppt er í áhaldafimleikum karla og kvenna. Tveir í gólfæfingum og einn á stökki yfir hest. Yfirdómari áhaldsins kemur þeim inn í störf sín. Línuverðir eru alltaf til staðar á mótum í frjálsum æfingum en ekki er þörf fyrir línuverði á öllum hlutum þrepamóta (þ.e. í léttustu keppnisþrepunum), ákvarðast af tækninefndum.
Áhaldaspjaldberar: eru stundum hafðir við störf á fimleikamótum. Þeir leiða keppnishópa á milli áhalda í keppni. Getur auðveldað skipulag í keppnissal og gefið mótinu skemmtilegt yfirbragð.
Áhaldamenn: hafa það hlutverk að setja upp og raða áhöldum og öðrum búnaði fyrir mót og sjá um frágang eftir mótið. Gott að hafa 2-3 áhaldamenn á mótinu sjálfu ef flytja þarf áhöld eða annan búnað á meðan á keppni stendur t.d. stórar dýnur.
Dyraverðir: geta verið staðsettir á fleiri en einum stað. Þ.e. í miðasölu mótsins og svo aðrir á stöðum þar sem að aðgengi í keppnissal er mjög opið og gæti valdið keppendum truflun.
Læknir/sjúkraþjálfari/sjúkraflutningamaður: á fimleikamótum er nauðsynlegt að hafa lækni eða sjúkraþjálfara til staðar ef slys eða önnur meiðsli eiga sér stað í upphitun eða keppni. Sá aðili tekur ákvörðun um frekari meðferð t.d. hvort að viðkomandi aðili þurfi að fara á bráðamóttöku og hvort þurfi sjúkrabíl. Einnig getur þessi aðili ákvarðað í samráði við keppenda og eða þjálfara hvort að viðkomandi sé keppnisfær.
Veitingar: bæði þarf starfsmenn til að sjá um veitingar fyrir starfsmenn mótsins og til að sjá um veitingarsölu fyrir áhorfendur. Fjöldi ræðst af umfangi og lengd mótsins t.d. í hve mörgum hlutum mótið er.
Skreytingar: gott að hafa starfsmenn til að sjá um skreytingar í keppnissal ef einhverjar eru. Þá er m.a. átt við fána, borðdúka, blóm og auglýsingar.
Afhending verðlauna: mótsstjóri þarf að velja einstaklinga til að afhenda verðlaun í mótslok og tilvalið er að hafa spjaldbera til aðstoðar t.d. til að bera verðlaunabakka, afhenda viðurkenningar eða gjafir til keppenda.
Gögn fyrir þjálfara
Samkvæmt heildaráætlun mótsins á mótshaldari að halda þjálfarafund áður en upphitun á áhöldum hefst. Þar fær hvert félag afhent A4 umslag sem inniheldur ýmis mótsgögn s.s. keppnisnúmer og nælur, heildaráætlun mótsins, upphitunar- og keppnisáætlun, skiptingu keppnishópa og röðun keppenda á áhaldi. Mótshaldari tilkynnir hvernig inn- og útmarsi skulu háttað og staðsetningu keppenda og þjálfara í keppnissal.
Verðlaun og verðlaunaafhending
Verðlaungripir koma með mótagögnum frá FSÍ.
Verðlaunafhendingin skal vera vel skipulögð og ganga hratt fyrir sig. Alltaf skal byrja á því að afhenda fyrir fyrsta sætið fyrst, þannig að sigurvegarar hafi lengsta viðveru á verðlaunapallinum. Ekki skal hefja innmars fyrr en að úrslita liggi fyrir og dómarar hafa staðfest einkunnir sínar við ritara. Góð regla er að kynnir sé með upplýsingar um úrslitin þegar innmars hefst. Þeir sem afhenda verðlaunin þurfa að kynna sér röðun verðlaunabakka og afhenda verðlaunapeninga á undan bikurum ef einhverjir eru. Mikilvægt er að mótshaldari haldi utanum skorun verðlauna og tilkynni það til mótastjóra FSÍ eftir mót svo að hægt sé að útbúa aukaverðlaun og koma þeim í réttar hendur.
Veitingar fyrir starfsmenn
Mótshaldari þarf að hafa aðstöðu fyrir veitingar starfsmanna, þar með talið dómara og þjálfara. Eldhúsbúnaður, magn drykkja og léttra matvæla er háð umfangi og lengd mótsins.
Áhorfendur
Þjónusta við áhorfendur felst aðalega í góðri aðstöðu inna sem utan keppnissalarins, að kynningar á mótinu sé góðar svo auðvelt sé að fylgjast með gangi mála, að tímaáætlun standist og í sölu veitinga eða annara muna.
Á mótum er nauðsynlegt að sýna einkunnir. Einnig er nauðsynlegt að auglýsa vel slóðina á úrslitakerfi FSÍ. En þar geta áhorfendur fylgst með gangi mála á vefnum í rauntíma.
Keyrsla mótsins
Mótsstjóri ber ábyrgð á að “keyra” mótið áfram samkvæmt skipulagi. Hann þarf að hafa kynni mótsins í liði með sér svo að upphitun fyrir mótið sé á tíma og að mótið hefjist á réttum tíma sem og til að ýta á eftir áhaldaskiptum og að keppnishópar hefji keppni.
Ef að mótsstjóra finnst mótið ganga of hægt eða verður var við að tímaáætlun standist ekki ber honum að ráðfæra sig við yfirdómara mótsins og leita skýringa.
Keyrsla mótsins frá hendi mótsstjóra er þessi:
- upphitun
- þjálfarafundur
- innmars
- fánakveðja
- mótið sett
- mars áhöld
- keppni og áhaldaskipti
- að verðlaunagripir sé tilbúnir til afhendingar
- innmars fyrir verðlaunaafhendingu
- verðlaunaafhending
- mótsslit
- fánakveðja
- útmars
Vinna í mótslok
Að loknu móti þarf mótshaldari að senda stutta frétt á FSÍ. Einnig þarf að skila lista með verðlaunum sem að skarast á mótastjóra. Mótagögnum skal koma sem fyrst á skrifstofu FSÍ. Taka þarf niður eða endurraða áhöldum og öðrum búnaði og skila því sem að fengið var að láni sem fyrst.
Mótshaldari sér um að skrifa stutta samantekt strax eftir mótið og senda skrifstofu FSÍ.
Lokaorð
Undirrituð vonar að samantekt þessi auðveldi þeim aðilum sem koma að mótahaldi í fimleikum að undirbúa og framkvæma fimleikamót í framtíðinni. Einnig mikilvægt að allir aðilar sem komi að mótum FSÍ fari eftir Móta- og keppnisreglum FSÍ.
Einnig skal minnt á að góð samvinna þeirra aðila sem koma að mótahaldi er grunnur að vel skipulögðu og skemmtilegu fimleikamóti.
Uppfært í júlí 2020 af mótastjóra FSÍ.
Fyrir hönd fræðslunefndar FSÍ,
Hlín Bjarnadóttir