Þjálfaranámskeið
Þjálfaranámskeið FSÍ eru hluti af þjálfaramenntun ÍSÍ. Þjálfaramenntunin skiptist í tvo hluta þar sem að almennur hluti námskeiða er kenndur á vegum ÍSÍ og sérgreinahluti er kenndur innan sérsambandanna. Innan íþróttahreyfingarinnar hefur verið unnið eftir þessu fyrirkomulagi frá 1999.
Námskeið fyrir stjórnendur leikskólahópa
Á þessu námskeiði er fjallað um hreyfiþroska og samskipti við börn á aldrinum 2-5 ára. Farið er í hugmyndir að upphitun og áhaldahringjum og uppbyggingu tímans. Einnig er búist við að þjálfarar taki virkan þátt á námskeiðinu í umræðum og séu tilbúnir að deila reynslu sinni.
Aldurstakmark: 18 ár
Undanfari: Engin undanfari


Námskeið fyrir aðstoðarleiðbeinendur leikskólahópa
Á námskeiðinu er farið yfir hlutverk aðstoðarleiðbeinenda og til hvers er ætlast af þeim í tímanum. Fjallað er um samskipti við börn á aldrinum 2-5 ára auk þess sem farið er í móttökur á grunnæfingum.
Aldurstakmark: 14 ár.
Undanfari: Engin undanfari
Þjálfaranámskeið 1A
20 kennslustundir
Í bóklegri kennslu er lögð áhersla á hlutverk þjálfarans, virkni í þjálfun og öryggisþætti.
Í verklegri kennslu er farið í upphitun og leiki auk grunnæfinga í fimleikum.
Aldurstakmark: 15 ár (nemendur í 10.bekk).
Undanfari: Enginn undanfari.
Réttindi: Aðstoðarþjálfari.

Þjálfaranámskeið 1B
20 kennslustundir
Í bóklegum hlutum er kennd þjálffræði, líkamsbeiting og móttaka, fimleikasýningar og samskipti þjálfara.
Í verklegum hlutum fara allir þátttakendur í kennslu í líkamsbeitingu við móttöku. Þátttakendur hafa val um A) grunnþættir í kóreógrafíu B) grunnæfingar í áhaldafimleikum karla.
Aldurstakmark: 16 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A.
Réttindi: Aðstoðarþjálfari.
Þjálfaranámskeið 1C
20 kennslustundir
Í bóklegri kennslu er farið í hlutverk þjálfarans, undirbúning yngri iðkenda fyrir keppni og meiðsli og forvarnir í fimleikum. Í verklegum hlutum er farið í upphitum framhaldshópa, æfingar á stóru trampólíni og dýnu. Þátttakendur hafa val um A) lítið trampólín B) rá og stökk.
Aldurstakmark: 16 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A.
Réttindi: Þjálfari yngri iðkenda, hafi þjálfari náð 18 ára aldri, annars aðstoðarþjálfari.
Móttökunámskeið 1 – Hópfimleikar
Á námskeiðinu er kennd móttökutækni í öllum helstu grunnæfingum sem framkvæmdar eru á bæði dýnu og trampólíni í hópfimleikum. Námskeiðinu lýkur með verklegu prófi sem er metið staðið/fallið.
Aldurstakmark: 16 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A.
Réttindi: Námskeiðið gefur réttindi til móttöku á grunnæfingum í keppni.
Móttökunámskeið 1 – Áhaldafimleikar
Á námskeiðinu er kennd móttökutækni í ölllum helstu grunnæfingum sem framkæmdar eru í áhaldafimleikum karla og kvenna. Þátttakendur eru saman á stökki, gólfi og rám en skiptast svo í tvo hópa þegar kemur að slá hjá konum og hringjum og tvíslá hjá körlum. Námskeiðinu lýkur með verklegu prófi sem er metið staðið/fallið.
Aldurstakmark: 16 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A.

Þjálfaranámskeið 2A
20 kennslustundir
Í bóklegum hlutum er kennd aflfræði í fimleikum, þrekþjálfun og teygjur.
Í verklegri kennslu er farið í teygjur fyrir framhalds hópa og dýnustökk. Þátttakendur hafa val um að taka A) lítið trampólín B) rá og stökk.
Aldurstakmark: 17 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A, 1B, 1C og 1. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.
Réttindi: Þjálfari yngir keppnishópa.
Þjálfaranámskeið 2B
40 kennslustundir
Námskeiðið er tvískipt, fyrri hluti fer fram á haustönn og seinni hluti á vorönn. Námskeiðið skiptist að miklu leyti í hópfimleika og áhaldafimleika. Í bóklegri kennslu er farið í gólfæfingar í hópfimleikum, uppbyggingu keppnistímabila eftir greinum, sálfræði og anatómíu. Öllum áhöldum er sinnt í hverri grein fyrir sig, hópfimleikar, áhaldafimleikar karla og kvenna.
Aldurstakmark: 18 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A, 1B, 1C, 2A og 1.stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.
Réttindi: Þjálfari unglinga á keppnisstigi.
Þjálfaranámskeið 2C
20 kennslustundir
Í bóklegri kennslu er farið í meiðsli og fyrirbyggjandi æfingar fyrir hrygg, axlir og fætur auk fyrirlesturs um grindarbotn og æfingar. Í verklegri kennslu eru allar greinar saman í æfingum á dýnu, áhaldafimleikar kk og kvk taka stökk saman, kvk tekur slá, kk áhöld og hópfimleikar kóreógrafíu.
Aldurstakmark: 18 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A, 1B, 1C, 2A, 2B og 1.stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.
Réttindi: Þjálfari unglinga á keppnisstigi.

Móttökunámskeið 2 – Hópfimleikar
Á námkeiðinu er farið yfir móttökunækni í flóknari æfingum sem kenndar eru á dýnu og trampólíni í hópfimleikum. Á dýnu er farið í móttökur í skrúfum og tvöföldum heljarstökkum. Á trampólíni og hesti er farið í móttökur á tvöföldum heljarstökkum.
Aldurstakmark: 18 ár.
Undanfari: Þjálfaranámskeið 1A, 1B, 1C, 2A og Móttökunámskeið 1 í hópfimleikum.
Réttindi: Námskeiðið gefur réttindi til móttöku í keppni.
Þjálfaranámskeið 3A
20 kennslustundir
Á námskeiðinu er kennd styrktar og hlaupaþjálfun í verklegri kennslu. Í bóklegri kennslu er farið í sálfræði þar sem fjallað er um frammistöðukvíða og kvíða tengt keppni. Annað efni getur verið breytilegt milli ára.
Aldurstakmark: 20 ár.
Undanfari: 1. og 2. stig hjá FSÍ og ÍSÍ.
Réttindi: Þjálfari meistarahópa.
