Select Page

15/06/2020

Stefnumótun fimleika á Íslandi

Síðastliðna helgi fór fram stefnumótun fyrir fimleika á Íslandi. Stjórn FSÍ vinnur að því að móta framtíðarsýn sambandsins og bauð fagnefndum, landsliðsþjálfurum og félagsþjálurum að taka þátt í undirbúningsvinnu. Það var fjölbreyttur 30 manna hópur sem mætti á Laugarvatn og byrjað daginn á hugmynda- og hópavinnu. Það var stjórnarkona FSÍ hún Harpa Þorláksdóttir sem stýrði deginum en hún hefur mikla reynslu af slíkri vinnu. Þökkum öllum fyrir skemmtilega og lærdómsríka samveru um helgina.

Núna hafa tveir hópar af þremur lokið stefnumótunarvinnu en á haustmánuðum verður formönnum og stjórnendum félaganna boðið að taka þátt í samskonar vinnudegi.

Fleiri fréttir

Covid Reglur FSÍ

Covid Reglur FSÍ

Þriðjudaginn 18. ágúst voru Covid Reglur FSÍ samþykktar. Við hvetjum ykkur eindregið til að lesa þær yfir og innleiða inn í ykkar félag. Reglur FSÍ...

Kjörnefnd fyrir Fimleikaþing 2020

Kjörnefnd fyrir Fimleikaþing 2020

Fimleikaþing 2020 fer fram 12. september í Laugardalshöll, salur 2-3. Framboð til stjórnar FSÍ skal berast skrifstofu minnst tveimur vikum fyrir...

Félagaskipti – Haustönn 2020

Félagaskipti – Haustönn 2020

Við viljum minna á að félagaskiptaglugginn er opinn og verður það til og með 15. september. Hér má finna slóð á reglur um félagaskipti og...