Select Page

Þjálfaraleyfi

Þjálfaraleyfi er fyrir alla sem þjálfa fimleika samkvæmt flokkun hér að neðan. Þjálfarar eru flokkaðir af FSÍ samkvæmt menntun og þurfa þjálfarar að hafa aflað sér tilskyldrar menntunar innan fræðslukerfis FSÍ.

Gull

Fyrir þá þjálfara sem eru með þjálfararéttindi 3* (eða sambærileg réttindi, metin af sambandinu).

Silfur

Fyrir þá þjálfara sem eru með, auk 1A og 1B, þjálfararéttindi 1C, 2A, 2B og 2C (eða sambærileg réttindi, metin af sambandinu).

Kopar

Fyrir þá þjálfara sem eru með þjálfararéttindi 1A og 1B (eða sambærileg réttindi, metin af sambandinu).

Haustið 2020 verður viðhaldið aukinni kröfu um menntun fyrir þjálfaraskráningar. Þeir sem lokið hafa námskeiðum 1A, 1B, 1C, 2A og 2B fá silfurleyfi við skráningu. Til þess að fylgja keppendum á FSÍ mót þurfa þjálfarar að vera með silfurleyfi, skráðir í Þjónustugátt á tiltekið mót og framvísa þjálfaraskírteini á mótsstað.

Hafi þjálfari ekki öðlast réttindi sbr. flokkun hér að ofan en telur sig hafa jafngilda menntun getur hann sótt um staðfestingu til skrifstofu FSÍ með framlögðum gögnum.