Úrvalshópur kvenna
Inntökuskilyrði og val í landslið
Valið er í úrvalshóp í upphafi hvers árs. Til úrtöku er boðið þeim sem hafa náð bestum árangri í frjálsum æfingum árið á undan. Konur í úrvalshópi þurfa að vera 16 ára og eldri og íslenskir ríkisborgarar. Þær sem taka sæti í úrvalshópi skuldbinda sig til að fylgja reglum sambandsins. Fyrir hvert alþjóðlegt verkefni er valið í landslið. Eingöngu þær konur sem tilheyra úrvalshópi hafa möguleika á að komast í landsliðið. Fjöldi einstaklinga og kröfur eru breytilegar milli verkefna. Hægt er að kynna sér verkefni tímabilsins hér fyrir neðan.
Landsliðsþjálfari
Hildur Ketilsdóttir
Hefur lokið tveimur árum í Uppeldis og menntunarfræði HÍ. Hún hefur lokið öllum þjálfaranámskeiðum á vegum Fimleikasambands Íslands, Topp þjálfaranámskeiði í Danmörku og þjálfaranámskeiði á vegum Evrópska Fimleikasambandsins.
Hildur hefur sinnt þjálfun í rúm 20 ár hjá Fimleikafélaginu Björk á ýmsum getustigum, en lengst af sem þjálfari meistaraflokks Bjarkanna. Hún hefur setið í Tækninefnd áhaldafimleika kvenna í 6 ár, verið landsliðsþjálfari í tvö ár og landsdómari í 8 ár.
Hún hefur náð framúrskarandi árangri og hafa iðkendur hennar raðað sér í efstu sætin á sterkustu mótunum hérlendis og Bjarkirnar átt margar landsliðskonur undanfarin ár.
Í úrvalshóp eru
Nanna Guðmundsdóttir |
Grótta |
Katharína Sybilla Jóhannsdóttir | Fylkir |
Embla Guðmundsdóttir | Björk |
Emilía Björt Sigurjónsdóttir | Björk |
Guðrún Edda Min Harðardóttir | Björk |
Irina Sazonova | Fjölnir |
Laufey Birna Jóhannsdóttir | Grótta |
Margrét Lea Kristinsdóttir | Björk |
Sonja Margrét Ólafsdóttir | Gerpla |
Thelma Aðalsteinsdóttir | Gerpla |
Thelma Rún Guðjónsdóttir | Gerpla |
Birta Björg Aðalsteinsdóttir | Björk |
Áfram Ísland
#fyririsland
#fimleikarfyriralla
#islenskirfimleikar

Landsliðsverkefni 2020
Evrópumót
Staðsetning: Baku, Azerbaijan
Dagsetning: 13. – 20. desember 2020
Fyrirkomulag: Liðakeppni-fjölþraut og úrslit á einstökum áhöldum