Úrvalshópur stúlkna
Inntökuskilyrði og val í landslið
Tvisvar á ári eru frambærilegar fimleikastúlkur sem keppa í frjálsum æfingum boðaðar til úrtökuæfingar vegna úrvalshóps unglinga. Skilyrði fyrir inngöngu í hópinn er að vera 13-15 ára á árinu, íslenskur ríkisborgari og uppfylla þær hæfniskröfur sem landsliðsþjálfari gerir hverju sinni. Stúlkur sem taka sæti í úrvalshópi skuldbinda sig til að fylgja reglum sambandsins. Stúlkur í landslið eru valdar úr úrvalshópi fyrir hvert landsliðsverkefni
Landsliðsþjálfari
Þorbjörg Gísladóttir
Hefur lokið kennaramenntun frá HÍ. Hún hefur lokið öllum þjálfaranámskeiðum á vegum Fimleikasambands Íslands auk þessa að klára alla menntun í áhaldafimleikum kvenna hjá sænska fimleikasambandinu. Þorbjörg hefur átt sæti í tækninefnd í áhaldafimleikum með hléum frá árinu 1997. Hún er alþjóðlegur dómari og hefur sinnt dómgæslu fyrir Íslands hönd síðan 2009.
Þorbjörg tók við úrvalshópi unglinga haustið 2017 enn fram að því sinnti hún þjálfun á ýmsum getustigum hjá fimleikadeild Ármanns og fimleikadeild Fylkis með góðum árangri.
Í úrvalshóp eru
Dagný Björt Axelsdóttir | Gerpla |
Elín Freyja Andradóttir | Ármann |
Freyja Hannesdóttir | Grótta |
Hildur Maja Guðmundsdóttir | Gerpla |
Kristín Sara Jónsdóttir | Gerpla |
Leona Sara Palsdottir | Fjolnir |
Natalía Dóra Snæland Rúnarsdóttir | Björk |
Patrycja Inga Dabrowska | Björk |
Ragnheiður Jenný Jóhannsdóttir | Björk |
Saga Þórsdóttir | Grótta |
Salka Sverrisdóttir | FIMAK |
Svanhildur Nielsen Hlynsdóttir | Ármann |
Viktoría Benónýsdóttir | Fylkir |
Áfram Ísland
#fyririsland
#fimleikarfyriralla
#islenskirfimleikar

Landsliðsverkefni 2020
Evrópumót
Staðsetning: Baku, Azerbaijan
Dagsetning: 13. – 20. desember 2020
Fyrirkomulag: Liðakeppni-fjölþraut og úrslit á einstökum áhöldum